Innlent

Réðst á lögreglumenn í miðborginni

Tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt, annar fyrir ölvunarakstur en hinn fyrir ólæti. Sá síðarnefndi, sem var ölvaður, hafði þá ráðist á dyraverði skemmtistaðar í miðborginni. Þegar lögreglumenn hugðust róa hann og keyra hann heim réðst hann á þá og var hann því færður í fangageymslur þar sem hann var látinn sofa úr sér ölvímuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×