Sport

Verðum að sigra Villareal

Alex Ferguson segir leikinn gegn Villareal þann mikilvægasta á síðari árum
Alex Ferguson segir leikinn gegn Villareal þann mikilvægasta á síðari árum NordicPhotos/GettyImages

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að leikurinn við Villareal í Meistaradeildinni annað kvöld verði að vinnast og treystir á að heimavöllurinn nægi til að koma sínum mönnum áfram.

"Þetta er alger lykilleikur og ég vona að heimavöllurinn reddi okkur. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur og sá mikilvægasti í Evrópukeppninni á síðustu árum. Við verðurm að vinna þennan leik ef við ætlum okkur að komast áfram," sagði Ferguson, því ef United tapar fyrir Villareal og Lille sigrar Benfica, gæti það orðið hlutskipti United að sitja eftir með sárt ennið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×