Sport

Bobby Robson hefur áhuga á Portsmouth

Sir Bobby Robson
Sir Bobby Robson NordicPhotos/GettyImages

Gamla kempan Bobby Robson er sagður koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri Portsmouth, en hann hefur lýst því yfir að hann sé heitur fyrir því að halda áfram að vinna sem knattspyrnustjóri þrátt fyrir að vera kominn vel á áttræðisaldur.

Neil Warnock, stjóri Sheffield United, hefur verið orðaður mikið við Portsmouth, en hann hefur tekið af allan vafa og segist ekki fara frá Sheffield.

Robson hinsvegar, auglýsir sig grimmt og segist elska fótboltann. "Ég hef alltaf sagt að ég vilji halda áfram að vinna í fótboltanum og ég sakna helganna með strákunum, undirbúningsins fyrir leiki og tilfinningarinnar sem fylgir því að vinna," sagði Robson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×