Innlent

Sakfelldur fyrir skilorðsrof og dæmdur í ársfangelsi

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í eins árs fangelsi fyrir að hafa með fíkniefnabroti rofið skilorð. Rétturinn þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um átta mánuði og staðfesti jafnframt upptöku á amfetamíni og e-pillum sem fundust á manninum á dansleik á Akureyri í fyrra. Fram kemur í dómnum að hinn ákærði hafi áttatalsverðan sakarferil að bakiog þegar litið var til þess þótti ekki koma til álita að dæma honum frekari skilorðsbundna fangelsisrefsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×