Innlent

Grunaður um viðamikla fíkniefnasölu

Fangelsið á Akureyri.
Fangelsið á Akureyri. MYND/KK

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem er grunaður um viðamikla fíkniefnasölu á Akureyri. Maðurinn var handtekinn á skemmtistað á Akureyri fyrir viku með peninga sem lögregla telur afrakstur fíkniefnasölu og heima hjá honum fannst eitt kíló af maríjúana.

Lögregla segir átta milljónir hafa farið um bankareikning mannsins á árinu og þykir það furðulegt í ljósi þess að hann er skráður atvinnulaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×