Innlent

Kengúrukjöt og krónhjartarsteik er meðal þess sem fólki býðst að kaupa í jólamatinn

Kengúrukjöt og krónhjartarsteik er meðal þess sem fólki býðst að kaupa í jólamatinn.

Sífellt fleiri eru tilbúnir til að prófa eitthvað nýtt á jólunum og er úrvalið af villibráðarkjöti mikið. Meðal þess sem hægt er að fá í verslunum fyrir þessi jól er fasani, akurhæna, skógardúfa, héri, kengúra, krónhjörtur og kanína. Þótt flestir kaupi hefðbundinn, íslenskan jólamat eins og hangikjöt eða hamborgarhrygg þá fjölgar þeim stöðugt sem kjósa að vera með nýja, framandi rétti á jólunum í bland við þann hefðbundna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×