Lífið

Sálin með í sjöunda sinn

Það er orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói og stilli saman strengi til styrktar SKB, Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.

Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa yfir 12 milljónir króna safnast á þessum tónleikum, og nú er markmiðið að sú upphæð hækki í skarpia.m.k. fjórtán milljónir króna.

Þess má geta að hljómsveitin Sálin hans Jóns míns sem kemur fram á tónleikunum kemur nú fram á þessum tónleikum í sjöunda sinn.

Dagskrá kvöldsins:

16:30 HÚSIÐ OPNAR

17:00 Sálin hans Jóns míns

17:10 Heitar Lummur

17:15 Jónsi

17:20 Heiða

17:25 Ísafold

17:35 Jón Sigurðsson

17:40 Hlé

18:00 Paparnir

18:10 Bubbi

18:18 Hildur Vala

18:23 Davíð Smári

18:29 Nylon

18:40 Kung Fú

18:47 ÁVÍSUN AFHENT

18:55 Skítamórall

19:05 BÚIÐ

Kynnar: Simmi og Jói úr Idolinu

Miðasala fer fram í öllum verslunum Skífunnar, www.concert.is og www.midi.is.

Miðaverð er aðeins 2.500 kr.

Þess ber að geta að allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína til fulls. Öll innkoma tónleikanna er afhent fulltrúa SKB á tónleikunum.

Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Markmðið með stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði félagið takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem meðlimir SKB geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir og úthlutar styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.

Neyðarsjóðurinn er í raun tiltekin fjárupphæð sem stjórn SKB samþykkir fyrir hvert starfsár. Sérstök úthlutunarnefnd fer síðan með umboð til fjárveitinga úr styrktarsjóði SKB en skipulagsskrá fyrir hann er staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Einnig ákveður stjórn SKB þak á hverja úthlutun. Hver félagsmaður í SKB má þó sækja um eins oft og hann telur þörf á. Þess skal getið að skila þarf inn ítarlegum upplýsingum með hverri umsókn í neyðarsjóð svo úthlutunarnefnd fái tekið vel upplýstar og ígrundaðar ákvarðanir. Auk þessa aðstoðar þjónustufulltrúi SKB hjá viðskiptabanka félagsins úthlutunarnefnd við skoðun og mat á umsóknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×