Sport

Bowyer þarf fyrir rétt

Lee Bowyer leikmaður Newcastle þarf að mæta fyrir rétt vegna slagsmálanna við samherjann Kieron Dyer en honum var birt stefna þess efnis í dag. Bowyer hefur þegar tekið út þunga refsingu af hendi enska knattspyrnusambandsins en umrætt atvik átti sér stað í leik Newcastle gegn Aston Villa í apríl sl. Það kemur nokkuð á óvart að lögreglan skuli núna skyndilega ætla að blanda sér í málið en ákæran er fyrir "ógnandi hegðun". Dyer hins vegar sleppur við kæru. Lögfræðingur Bowyer hefur lýst yfir hneykslun sinni yfir stefnunni og ætlar að fara fram á að ákvörðunin um að lögsækja umbjóðanda sinn verði tekin til endurskoðunar. Hann telur að ákæran sé af pólitískum toga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×