Blair kynnti kosningaloforðin 13. apríl 2005 00:01
Kosningabaráttan í Bretlandi er komin á fullan skrið. Verkamannaflokkurinn kynnti kosningaloforð sín í dag við litla hrifningu íhaldsmanna. Eins og búist hafði verið við verða efnahagsmálin og hagvöxtur síðustu ára megin kosningamál Verkamannaflokksins og efnahagsundri vinstri manna, fjármálaráðherranum Gordon Brown, er þar mikið hampað. Sá skuggi fellur þó á að atvinnuleysi fer vaxandi í Bretlandi eins og Íhaldsflokkurinn er óspar að benda á. Íhaldsmenn setja stórhertar reglur um innflytjendur á oddinn í þessum kosningum. Forystumenn flokkanna notuðu tækifærið í dag og skattyrtust hvor út í annan. Tony Blair forsætisráðherra sagði að það yrði að tryggja að aðeins þeir sem þörf og vilji sé fyrir að komi til landsins geti það, og boðaði hann strangar reglur um innflytjendur. „En þar sem Bretar eru gott og umburðarlynt fólk munum við halda áfram að veita raunverulegum flóttamönnum hæli og látum pólitík aldrei stjórna innflytjendamálum,“ sagði Blair. Michael Howard, leiðtogi Íhaldsflokksins, sagði fólk hafa gefist upp á Blair því það sjái að hann hafi misst tökin. Stefnuyfirlýsing hans sé full af loforðum en Howard spurði hvað forsætisráðherrann hafi verið að gera sl. átta ár í embætti. „Það er þýðingarlaust að koma með loforð núna. Hann hafði átta ár,“ sagði Howard.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira