Sport

Góður sigur Vals á HK

Valsmenn bitu svo sannarlega í skjaldarrendur í síðari hálfleiknum í leiknum við HK í kvöld, því eftir að hafa verið undir 17-13 í hálfleik, náðu þeir að vinna sigur í leiknum 36-25 með ótrúlegum endaspretti í leiknum. Ekki er því hægt að segja annað en að handboltinn fari vel af stað í vetur. Markahæstir í liði Vals voru Sigurður Eggertsson með 11 mörk og Baldvin Þorsteinsson með 6 mörk. Hjá HK var Valdimar Þórsson markahæstur með 10 mörk, þar af 2 úr vítum og Arnar Reynisson varði 20 skot í markinu, þar af 14 í fyrri hálfleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×