Innlent

Rotaðist í Norðurárdal

Ökumaður bíls sem fór út af veginum og valt í Norðurárdal síðdegis í gær var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík. Maðurinn sem var einn í bílnum hafði orðið fyrir nokkru höfuðhöggi og rotast. Slysið átti sér stað á fimmta tímanum, en komið var með hann til Reykjavíku um klukkan sex. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild virtist maðurinn ekki hafa orðið fyrir alvarlegum skaða við veltuna, en var þó lagður inn til eftirlits og rannsókna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×