Menning

Kynna og selja bútasaum um helgina

Félagsmenn í Íslenska bútasaumsfélaginu verða með handverks- og skiptimarkað um helgina að Vesturgötu 7 í Reykjavík frá klukkan tvö til fjögur. Gestum gefst kostur á að líta inn í opnar vinnustofur þar sem bæði er saumað í höndum og á saumavélar. Þá verður stefnumót við safnara, sýning þar sem söfnunarástríða margra Íslendingar verður í heiðri höfð, opnuð klukkan þrjú í Gerðubergi. Þar verða sýnd brot úr eigu safnara, svo sem bangsar, Elvis Presley hlutir, gosdrykkjamiðar, dúkkurlísur, ælupokar og munkar svo fátt eitt sé nefnt og geta gestir tekið þátt í Elvis-karókíi á opnuninni. Ef fólk hefur ekki áhuga á menningarstarfsemi er þetta góður tími til að taka til í garðinum því starfsmenn borgar og bæja verða á ferðinni á næstunni og fjarlægja garðaúrgang sem fólk heur sett út fyrir lóðamörk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.