Erlent

SAS hyggst segja upp allt að 300 flugmönnum

Norræna flugfélagið SAS hyggst á næstunni segja upp allt að þrjú hundruð flugmönnum í sparnaðarskyni. Frá þessu er greint á vefmiðli danska blaðsins Politiken. Þar er greint frá því að félagið hafi átt í viðræðum við flugmenn í þessari viku vegna fyrirhugaðra uppsagna, en SAS hefur átt á brattann að sækja undanfarin misseri. Ekki er ljóst hvenær kemur til uppsagnanna og hversu mörgum flugmönnum verður sagt upp í hverju skandinavísku landanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×