Erlent

Fjórir féllu í Írak

Tveir bandarískir hermenn féllu í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás í suðurhluta Bagdad í nótt. Fjórir Bandaríkjamenn og sjö Írakar særðust í árásinni. Bandarísk herþyrla kom þegar á vettvang og flutti hina slösuðu á sjúkrahús. Enginn þeirra er þó talinn í lífshættu. Í morgun féllu svo tveir í valinn og fimm særðust þegar bílsprengja sprakk vestur af Bagdad. Árásir uppreisnarmanna í Írak hafa færst mjög í vöxt undanfarið eftir að úr þeim dró í kjölfar kosninganna í janúar. Í gær létust tólf manns og meira en sextíu slösuðust í nokkrum árásum í grennd við Bagdad.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×