Innlent

Ók traktor inn í tölvuverslun

Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu inn í tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut í leiðinni dyraumbúnað og stóran sýningarglugga. Að því búnu lét hann greipar sópa í verlsuninni og hvarf á brott. Ekki er enn vitað hversu miklu hann stal né hver eða hverjir voru þarna á ferð, en rannsóknarlögreglumenn eru á vettvangi. Grafan var læst og því ljóst að þjófurinn braust inn í hana með lykli eða öðrum ráðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×