Innlent

Embætti hafi brugðist skyldum

Ríkislögreglustjóraembættið hefur brugðist skyldum sínum í rannsókn og útgáfu ákæru í Baugsmálinu að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún vísar hins vegar ásökunum efnhagsbrotadeildar frá því í morgun um að hún hafi sagt embættinu handstýrt af yfirboðurum sínum alfarið á bug. Ingibjörg segir embættið og starfsmenn þess verða að finna þeim ásökunum stað. Hún segir hins vegar að ákæran og rannsókn málsins hafi komið fram í andrúmslofti sem skapast hafi vegna yfirlýsinga forsætisráðherra um Baug, að öðru leyti hafi hún ekki tengt ákærurnar og yfirvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×