Innlent

Slasaðist alvarlega í árekstri

Kona slasaðist alvarlega þegar jeppi og fólksbíll lentu í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi skammt norðan við Borgarnes á áttunda tímanum í gærkvöldi. Karlmaður, sem var farþegi í bíl konunnar, slasaðist líka og var lagt af stað með þau áleiðis til Reykjavíkur í sjúkrabíl. Vegna mikilla meiðsla konunnar var strax kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem kom á móts við sjúkrabílinn og tók konuna um borð og flutti á slysadeild Borgarspítalans. Þar liggur hún á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru óljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×