Sport

Ísland í 9. sæti

Íslenska landsliðið í handknattleik karla 21 árs og yngri tryggði sér 9. sætið á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í morgun með því að bera sigurorð af Ísraelsmönnum, 35-32. Í hálfleik var staðan 18-17 fyrir Íslendinga. Ásgeir Örn Hallgrímsson var atkvæðamestur íslensku piltanna og skoraði 11 mörk. Ernir Hrafn Arnarson og Andri Stefan skoruðu 6 mörk hvor og Arnór Atlason 5.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×