Viðskipti innlent

Keyptu í lettneskum banka

Upplýst um kaupin. Frá kynningu á kaupum íslenskra fjárfesta á sextíu prósenta hlut í Lateko-bankanum í Riga. Auk fjárfesta og eigenda bankans voru Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Artis Pabriks, utanríkisráðherra Lettlands, viðstaddir.
Upplýst um kaupin. Frá kynningu á kaupum íslenskra fjárfesta á sextíu prósenta hlut í Lateko-bankanum í Riga. Auk fjárfesta og eigenda bankans voru Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Artis Pabriks, utanríkisráðherra Lettlands, viðstaddir.

Íslenskir fjárfestar hafa keypt meirihluta í lettneska við­skipta­bankanum Lateko. Bank­­inn rekur tíu útibú og um 67 minni afgreiðslustaði, en hjá hon­um starfa um 550 manns. Þá er bank­inn með skrifstofur í London og Moskvu.

Straumborg ehf., félag í eigu Jóns Helga Guðmunds­sonar í Byko, keypti 51 prósent en félög tengd Jóni Helga og Byko hafa verið með starfsemi í Lett­landi frá árinu 1993. Ice-Balt Invest ehf., sem er félag í eigu Þorsteins Ólafssonar og Vitalijs Gavrilovs, formanns vinnu­veit­enda­sambands Lett­lands, keypti níu pró­sent. Helstu eig­end­ur bankans fyrir kaupin, sem eru lettneskir, halda um 40 pró­sent­um hlutafjár í bankanum.

"Okkur finnst þetta óskaplega spennandi verkefni og teljum að lettneski fjármálamarkaðurinn eigi eftir mikla og öra þróun á næstu árum," segir Jón Helgi Guð­mundsson.

"Okkur langaði, í framhaldi af því sem við höfum verið að gera í fjárfestingum í bankageiranum á Íslandi, að taka þátt í þessu hér. Við höfum náttúrlega verið nokkuð lengi með starfsemi í Lettlandi og höfum í gegnum hana öðlast nokkra tiltrú á þessu umhverfi og þykjumst skynja þann drifkraft sem hér er undirliggjandi."

Jón Helgi neitar því ekki að fjárfestingum í Eystrasaltsríkjunum kunni að fylgja einhver áhætta. Hann telur þó að aðrar ástæður geti legið að baki því að bankar hér hafi látið vera að fjárfesta þar, svo sem að það gæti haft áhrif á lánshæfismat þeirra. "En ég þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu lánshæfismati," bætir hann við.

Jón Helgi segist bundinn trúnaði um kaupverð bankans, sem stofnaður var árið 1992, en eign­ir hans eru sagðar nema um 30 millj­örðum króna. Ef miðað er við heild­ar­eignir er bankinn sá tíundi stærsti af tuttugu og þremur bönkum Lettlands. Þá var hann valinn besti banki árs­ins 2005 af tímaritinu The Banker.

Upplýst var um kaupin á blaða­­mannafundi í Riga síðdegis í gær. Auk fjárfestanna og annarra eig­enda bankans voru á fundinum Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendi­herra og utanríkisráðherra, og Artis Pabriks, utanríkisráðherra Lettlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×