Viðskipti erlent

Hlutabréf lækkuðu lítillega í Japan

Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag, annan daginn í röð. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 6,11 punkta eða 0,04 prósent. Í gær lækkuðu bréfin hins vegar um 0,78 prósent.

Lækkunin var mest hjá iðn- og byggingafyrirtækjum. Tokyo Steel MFG Co. lækkaði um 1,45 prósent en gengi bréfa í byggingafyrirtækinu Mitsui Fudosan Co. lækkaði um 2,16 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×