Viðskipti erlent

Trump-tollar tóku gildi í nótt

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær um 104 prósenta tolla á tiltekanr vörur frá Kína.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær um 104 prósenta tolla á tiltekanr vörur frá Kína. EPA

Refsitollar Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem hann setti á um sextíu ríki sem hann vill meina að hafi misnotað aðstöðu sína í viðskiptum gagnvart Bandaríkjunum í áraraðir tóku gildi í nótt. 

Þetta eru tollarnir sem koma aukalega ofan á tíu prósenta tollinn sem settur er á innflutning frá öllum öðrum ríkjum, þar á meðal Íslandi. Sú breyting tók gildi um síðustu helgi.

Vörur frá Kína verða langverst úti, en Trump fyrirskipaði 104 prósenta toll á kínverskar vörur í refsiskyni eftir að Kínverjar settu sjálfir aukatolla á bandarískar vörur. Kínverjar eru stærsti útflytjandi heims og magn vöru sem flæðir þaðan til Bandaríkjanna er gríðarlegt. 

Asíulönd koma verst út úr tollahækkun Trumps sem sást á mörkuðum þar í nótt þar sem hlutabréfaverði lækkaði víðast hvar. Auk Kína fá vörur frá Kambódíu tæplega fimmtíu prósenta toll og vörur frá Víetnam fá á sig 46 prósenta innflutningstoll. 

Fjölmörg bandarísk fyrirtæki láta framleiða fyrir sig í þessum löndum og því má búast við að hækkanir verði á vörum frá risafyrirtækjum á borð við Apple og Nike. 

Einhver bið verður þó á þessum hækkunum, því nýju tollarnir verða ekki settir á vöru sem þegar var lögð af stað frá framleiðslulandinu í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×