Erlent

Pólsk lögregla flettir ofan af eiturlyfjahring

MYND/Vilhelm

Pólsk og sænsk lögregla flettu ofan af risaeiturlyfjahring sem var við það að smygla eityrlyfjum fyrir sjö milljarða íslenskra króna en pólska lögreglan skýrði frá þessu í dag. Eiturlyfin náðust þegar verið var að reyna að smygla einu og hálfu tonni af kókaíni beint frá Kólumbíu til Póllands.

Tveir Pólverjar og einn Bandaríkjamaður, sem er vel þekktur í alþjóðlegum eiturlyfjaheimi, voru handteknir í aðgerðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×