Erlent

Pilla á dag kemur þyngdinni í lag

Fólk á það til að minnka um heilar tvær stærðir í fötum ef það notar þessa nýju pillu. Slæmt ef þér finnst leiðinlegt að kaupa föt.
Fólk á það til að minnka um heilar tvær stærðir í fötum ef það notar þessa nýju pillu. Slæmt ef þér finnst leiðinlegt að kaupa föt. MYND/Getty Images

Vísindamenn hafa þróað pillu sem að hjálpar fólki að grennast. Eftir prófanir kom í ljós að fólk sem hafði tekið eina pillu á dag í 48 vikur missti um 12% af líkamsþyngd sinni. Þetta jafngildir því að 100 kílóa maður myndi fara niður 88 kíló bara með því að bryðja eina pillu á dag í eitt ár.

Pillan virkar þannig að hún platar heilan til þess að trúa halda efnaskiptum hröðum og virkum allan sólarhringinn. Venjulega stjórnar heilinn hraða efnaskipta en svona er hægt að halda efnaskiptum hröðum og brenna kaloríum allan liðlangan daginn.

Buist er við því að pillan eigi eftir að koma á markað í Bretlandi á næstu árum en notkun lyfja til þess að meðhöndla offitu hefur aukist um 600% frá árinu 1999. Ljóst þykir því að eftirsóknin verður mikil í pilluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×