Innlent

Vill endurskoða lög um sóknargjöld

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur þrívegis farið þess á leit við allsherjanefnd að fá jafna stöðu á við eiginleg trúfélög í landinu. Félagið sendi allsherjanefnd fyrir stuttu, tillögu að lögum um líffskoðunarfélög og breytingar á lögum um sóknargjöld. Mál Siðmenntar var tekið fyrir á fundi hjá allsherjanefnd í fyrradag. Ágúst segir málið fyrst og fremst snúast um jafnræði og val hvers og eins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×