Handbolti

Meistaradeildin á Fjölvarpinu

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach verða í eldlínunni á Sýn og Eurosport í vetur
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach verða í eldlínunni á Sýn og Eurosport í vetur NordicPhotos/GettyImages

Eurosport hefur gert samning við Handknattleikssamband Evrópu um beinar útsendingar frá meistaradeildinni í handbolta og verða leikir þýsku liðanna allir í beinni útsendingu næstu þrjú árin. Þetta þýðir að þeim sem hafa aðgang að fjölvarpinu á Digital Ísland geta séð Íslensku leikmennina fara á kostum með liðum sínum í vetur.

Þess má geta að sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá báðum viðureignum Alfreðs Gíslasonar og félaga í Gummersbach og Íslandsmeistara Fram í riðlakeppninni, auk þess sem eitthvað verður sýnt frá keppninni þegar nær dregur úrslitunum.

Hér fyrir neðan gefur að líta lista yfir sjónvarpsleikina sem verða í boði á Eurosport og Eurosport 2 í vetur:

28.09.06, Flensburg - RK Zagreb - Eurosport

01.10.06, Fram - Gummersbach - Eurosport 2

01.10.06, Gudme - THW Kiel, - Eurosport2

05.10.06, Kiel - Karvina, Eurosport 2

05.10.06, Gummersbach - Sandefjord - Eurosport

08.10.06, Skopje - Flensburg - Eurosport 2

12.10.06, Flensburg - Medwedi - Eurosport 2

12.10.06, Gummersbach - Celje - Eurosport

14.10.06, Constanta - Kiel - Eurosport 2

19.10.06, Flensburg - Skopje - Eurosport

22.10.06, Karvina - Kiel - Eurosport2

02.11.06, Kiel - Svendborg - Eurosport

02.11.06, Gummersbach - Fram - Eurosport 2

05.11.06, Zagreb - Flensburg - Eurosport 2

11.11.06, Medvedi - Flensburg - Eurosport 2

12.11.06, Kiel - Constanta - Eurosport




Fleiri fréttir

Sjá meira


×