Innlent

Stal bíl og setti á nýtt númer

Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir bílastuld og skjalafals en ákæra á hendur honum var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í gær.

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa í lok janúar stolið bifreið af bílastæði bílasölu í Reykjavík, eftir að hafa stolið lykli að bílnum af lyklakippu þegar hann fékk að reynsluaka honum daginn áður.

Honum er svo gefið að sök að hafa sama dag stolið bílnúmeri af jeppa sem stóð á bílastæði bílasölu á Selfossi og fest númerið á stolna bílinn. Hann ók svo stolna bílnum í eina viku áður en hann var handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×