Innlent

Stressið kom upp um Litháann

Í Héraðsdómi Reykjavíkur Litháinn sem tekinn var í Leifsstöð 4. febrúar hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Mál hans var tekið fyrir í héraði í fyrradag.
Í Héraðsdómi Reykjavíkur Litháinn sem tekinn var í Leifsstöð 4. febrúar hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Mál hans var tekið fyrir í héraði í fyrradag. MYND/Stefán

Kreditkortafærslur, staðsetning símtækja og úthringiupplýsingar auk augnskanna í líkamsræktarstöðinni World Class komu lögreglunni á spor Litháans, sem búsettur er hér á landi, og er ásamt öðrum ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Það var í kjölfar þess að landi hans var tekinn með tvær flöskur af fljótandi am-fetamíni í febrúar.

Mennirnir eru ákærðir fyrir innflutning á amfetamínbasa, fíkniefninu í fljótandi formi, sem hægt er að breyta í 1,8 kíló af am­fetamínsúlfati, eða í fast form til söludreifingar. Þeir eru taldir hafa átt vitorðsmann í Litháen.

Maðurinn sem handtekinn var í Leifsstöð var stöðvaður þar sem hann þótti órólegur og stressaður. Hvítvínsflöskurnar sem hann bar í handtösku voru því skoðaðar nánar. Þrátt fyrir að flöskurnar væru hver frá sínu landinu var frágangurinn á töppunum sá sami, stúturinn steyptur aftur með vaxi.

Við rannsókn lögreglu kom í ljós að hann hafði einnig komið til landsins í desember. Þá hafði sá sem ákærður er með honum borgað fyrir hann flugfarið heim í gegnum netið. Það kom lögreglunni á sporið sem og símanúmer sem einnig var skráð við söluna. Lögreglan lagði fram gögn sem sýndu staðsetningar símans til að reyna að sanna að eigandi kortsins ætti einnig óskráða símanúmerið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×