Innlent

Indriði hættir sem skattstjóri

Indriði H. Þorláksson
Indriði H. Þorláksson
Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með 1. október næstkomandi. Fjármálaráðherra hefur fallist á beiðnina og mun Indriði því hætta störfum að september loknum.

Indriði er 65 ára og hefur gegnt starfi ríkisskattstjóra frá 1. janúar 1999. Þar áður var hann um langt árabil skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og starfaði þar áður í menntamálaráðuneytinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×