Innlent

Samið við starfsfólk HSA

Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli AFL - Starfsgreinafélags Austurlands og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um fjögurra launaflokka hækkun til þeirra starfsmanna sem tilheyra AFLi. Hækkunin er afturvirk frá 1. maí síðstliðnum. Unnið hefur verið að nýjum stofnanasamningi síðustu tvo mánuði en ekki hefur enn náðst samkomulag um launahækkanir 1. september.

Afl og forystumenn HSA eru sammála um að stefna að því að lægst launuðu starfsmenn HSA hækki einum launaflokki meira en aðrir 1. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×