Innlent

Listaverk RÚV eru metin á 52 milljónir

verðmætasta verk ríkisútvarpsins  Málverkið Sumardagur í sveit eftir Gunnlaug Scheving er samkvæmt mati forvarðar verðmetið á 16 milljónir króna.
verðmætasta verk ríkisútvarpsins Málverkið Sumardagur í sveit eftir Gunnlaug Scheving er samkvæmt mati forvarðar verðmetið á 16 milljónir króna. MYND/Stefán

Listaverk í eigu Ríkisútvarpsins eru metin á rúmlega 52 milljónir króna, samkvæmt mati sem Hilmar Einarsson, forvörður í Morkinskinnu, vann fyrir nefnd á vegum Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda. Nefndin vinnur að mati á eignum ríkisútvarpsins en þeirri vinnu er ekki lokið ennþá.

Hilmar telur rétt að finna verkunum stað á Listasafni Íslands. „Ég tel að sum þessara verka, þá sérstaklega verkin eftir Gunnlaug Scheving, þurfi að setja upp á Listasafni Íslands. Það skiptir miklu máli að verkin séu á stað þar sem þau skemmast ekki og njóta sín vel. Söfnin uppfylla þessi skilyrði best og það væri því eðlilegast að koma þessum verkum fyrir á safni.“

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir ónauðsynlegt að koma listaverkunum fyrir á safni. Hann telur menningarlegt hlutverk RÚV minnka ef verkin fái ekki að vera áfram á veggjum í húsnæði RÚV. „Listaverkin eru hluti af ásjónu Ríkisútvarpsins og menningarlegt gildi þeirra fyrir stofnunina er dýrmætt og mikilvægt. Ég sé ekki ástæðu til þess að koma verkunum fyrir á safni þar sem þau eru hluti af þeirri ásýnd sem ríkisútvarp þarf að hafa.“

Verkin hanga uppi á vegg í húsnæði Ríkisútvarpsins. Verk Gunnlaugs Scheving, Sumardagur í sveit, er samkvæmt matinu dýrasta verkið en það er metið á sextán milljónir króna. Aðrar tvær myndir eftir Gunnlaug, sem tilheyra myndaröð er nefnist Sjávar­útvegur, eru metnar á tólf milljónir króna hvor.

Önnur verk í eigu RÚV eru nokkuð verðminni, samkvæmt mati Hilmars. Verkið Útvarp eftir Kjarval er metið á 1,8 milljónir króna, en verk eftir Þorvald Skúlason og Guðrúnu Kristjánsdóttur, tvö talsins, á rúmlega eina milljón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×