Innlent

Flutningabíll sleit raflínur

Raflínur Rafmagn fór af nokkrum húsum í nágrenni við Selfoss í gær.
Raflínur Rafmagn fór af nokkrum húsum í nágrenni við Selfoss í gær.

rafmagnsleysi Rafmagn fór af nokkrum húsum í nágrenni við Selfoss í gærmorgun eftir að flutningabíll sleit raflínu á Suðurlandsvegi. Var bílinn á leið eftir veginum með pallinn uppi og krækti í raflínuna með þeim afleiðingum að allir þrír vírarnir slitnuðu.

Ráðist var í viðgerð um leið og bilunin kom upp og var rafmagnið komið aftur á um hádegisbil. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK á Hvolsvelli gekk viðgerðin vel en mikil umferð var á svæðinu sem tafði lítillega fyrir viðgerðarmönnum. Lögreglan á Selfossi aðstoðaði þó viðgerðarmenn við að halda umferðinni frá staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×