Innlent

Þrír dælubílar sendir í verkið

Slökkvistarf Fjölmargir slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang í gær.
Slökkvistarf Fjölmargir slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang í gær.

Eldur kviknaði í vöruskemmu við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi í gærmorgun. Skemman er fyrrum áburðargeymsla verksmiðjunnar en er nú í eigu gámafélags og í henni hefur sorp frá iðnfyrirtækjum verið flokkað.

Mikinn reyk lagði frá eldinum og sendi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þrjá dælubíla á staðinn og tæplega tuttugu slökkviliðsmenn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Að sögn slökkviliðsins voru engin eiturefni í skemmunni og því aldrei mikil hætta á ferðum. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×