Innlent

Jónas áfrýjar til Hæstaréttar

Jónas Garðarsson, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar.

Jónas var eigandi skemmtibátsins Hörpu sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september í fyrra, með þeim afleiðingum að Friðrik Á. Hermannsson og sambýliskona hans, Matthildur Harðardóttir, létust. Jónas og kona hans slösuðust mikið en tíu ára gamall sonur þeirra slapp lítið meiddur úr slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×