Innlent

Ánægð með nýja skýrslu

Samtök ferðaþjónustunnar fagna skýrslu matvælaverðsnefndar forsætisráðherra. Í fréttatilkynningu frá samtökunum er þó lýst yfir vonbrigðum með að ekki hafi náðst samstaða í nefndinni.

Einnig kemur fram að nauðsynlegt sé að jafna og einfalda skattkerfið. Skorað er á ríkisstjórnina að koma þessum málum jafnt almennings sem atvinnulífsins í viðunandi horf sem allra fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×