Innlent

Lenging nauðsynleg

Sigrún Björk Jakobsdóttir
Sigrún Björk Jakobsdóttir

Atvinnuþróunar­félag Eyjafjarðar sendi frá sér ályktun í gær um lengingu flugbrautar á Akureyrarflugvelli, sem rædd hefur verið hjá bæjaryfirvöldum. „Lenging flugbrautar er grundvallaratriði varðandi framtíðaruppbyggingu millilandaflugs um völlinn og skapar mikil sóknar­færi,“ segir í ályktuninni.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að lengingin sé ekki komin inn á samgönguáætlun, en það gerist vonandi í haust, þótt óljóst sé hvenær hægt verði að hefjast handa. Ákvörðun verði tekin á fundi á morgun um hvaða framkvæmdum eigi að fresta til að koma í veg fyrir frekari þenslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×