Innlent

Tapaði síma og fermingarúri

Bjarki Brynjarsson
Bjarki Brynjarsson

Nokkuð er um að þjófar láti greipar sópa í búningsklefum íþróttahúsa. Þótt íþróttamannvirki séu oft með mann á vakt er oft mikill umgangur um þau og erfitt fyrir vaktmenn að greina svörtu sauðina úr hópnum. Á meðan á knattspyrnuleik stóð milli Fjölnis og Vals í vikunni komst þjófur í búningsklefa Fjölnisheimilisins og hafði meðal annars þrjá GSM-síma af keppendum beggja liða.

Bjarki Brynjarsson í Val tapaði GSM-síma og úri sem hann fékk í fermingargjöf. Hann segir að enginn vörður hafi verið sjáanlegur í kringum búningsklefana í Fjölnisheimilinu, sem sé oft reyndin þegar keppt sé þar. „Alltaf þegar við förum svona að keppa eru öll verðmæti sett í tösku og geymd hjá þjálfaranum en það var einhver misskilningur svo ég gerði það ekki í þetta sinn,“ segir hann.

Lárus Grétarsson, þjálfari liðs Fjölnis sem keppti á móti Val í vikunni, staðfestir að tveir í liðinu hans hafi tapað símunum sínum á sama tíma og stolið var frá Bjarka. „Þetta gerist í öllum íþróttafélögum og mjög erfitt að eiga við þessa hluti. Þessir strákar eiga náttúrlega bara að taka dótið með sér út á völlinn þar sem við erum með tösku með okkur. Það er einföld leið til að koma í veg fyrir að stolið sé frá þeim,“ segir Lárus.

Íþróttafulltrúi hjá Fjölni, Kristinn R. Jónsson, segir að alltaf séu menn á vakt í húsunum en svona mál komi samt upp. „Það er náttrulega svo mikill umgangur um húsið og erfitt að átta sig á því hver er að koma á æfingar og hverjir eru að gera eitthvað annað,“ segir Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×