Innlent

Erfitt að staðsetja notendur netsíma

Nútímafjarskiptabúnaður Ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan kröfðust þess í stjórnsýslukæru að brábirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar frá 8. maí, um flutning á símanúmerum, yrði felld úr gildi.
Nútímafjarskiptabúnaður Ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan kröfðust þess í stjórnsýslukæru að brábirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar frá 8. maí, um flutning á símanúmerum, yrði felld úr gildi. MYND/Stefán

Í stjórnsýslukæru sem barst til nefndar Póst- og fjarskiptastofnunar 6. júní segir að erfiðlega geti gengið að rekja símtöl í netþjónustu og á þeim forsendum geti Ríkislögreglustjóri og Neyðarlína átt í erfiðleikum með að sinna störfum sínum með eðlilegum hætti.

Í kærunni segir meðal annars að miklir „löggæslu- og rannsóknarhagsmunir séu í húfi“, þar sem „mjög yrði höggvið í þann árangur sem náðst hefur við uppbyggingu fjarskiptamiðstöðvar lögreglu“, ef notendum yrði það í sjálfsvald sett hvort símar þeirra yrðu í skráðir innan eða utan staðsetningakerfisins.

Hinn 8. maí ákvað Póst- og fjarskiptastofnun að Símanum hf. væri óheimilt að synja Atlassíma ehf. um númeraflutninga á grundvelli þeirra sjónarmiða sem síðarnefnda félagið hélt fram. Í ákvörðunarorðum segir „að Símanum hf. beri að flytja símanúmer í almennri talsímaþjónustu yfir í netsímaþjónustu til Atlassíma ehf. þegar um það berst umsókn sem fullnægir kröfum þess verkferils sem gildir um númeraflutning á fastanetinu.“

Ákvörðunin var tekin í deilumáli sem sprottið var af athugasemdum Símans hf. við því að ekki kæmi fram í umsókn Atlassíma ehf. hvar símanúmerið skyldi skráð. Af hálfu Símans var vísað til þess, að ef viðskiptavinur Atlassíma kysi að nálgast þjónustu um annað internetsamband „væri það mögulegt án tillits til nefndra félaga.“ Síminn taldi á þessum forsendum, væri Atlas­síma óheimilt að flytja númer til annarra en þeirra „sem tengja þau yfir heimataug, það er með skráningu á tiltekinn stað“, eins og segir orðrétt í stjórnsýslukæru.

Sérstaklega er frá því greint í kæru, og ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, að notendur „sem kaupa svokallaða flökkuþjónustu“, en þá er engin föst staðsetning skráð og gengið út frá því að notandinn geti tengst þjónustunni hvar sem er, komist hann í internetsamband, að það geti verið vandkvæðum bundið að staðsetja símtöl í netsíma.

Póst- og fjarskiptastofnun lagði áherslu á það þegar ákvörðunin var tekin að fjarskiptafyrirtæki þyrftu að gera notendum sínum grein fyrir þeirri hættu sem gæti skapast af því að nota netsíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×