Innlent

Ræningi skildi eftir blóðslóð

 Fjögur innbrot hafa komið til kasta lögreglunnar í Reykjavík undanfarna daga. Á miðvikudag var tilkynnt um tvö innbrot, annað á heimili í Breiðholti þar sem flatskjá var stolið og hitt í bifreið við Laugaveg. Í gær var tilkynnt um tvö innbrot til viðbótar. Hurð á veitingastað í austurbænum var sparkað upp og tuttugu þúsund krónum stolið. Þá var brotist inn á heimili við Hverfis­götu og fartölva og myndavél tekin. Ræninginn virðist hafa skorið sig og skilið eftir blóðslóð.

Allir þjófarnir eru ófundnir. Lögreglan segir innbrot ganga í bylgjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×