Innlent

Enn að hugsa

Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra útilokar ekki formannsframboð.
Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra útilokar ekki formannsframboð.
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, er enn að velta fyrir sér framboði til embætta innan forystu Framsóknarflokksins.

Það liggur ekkert á, það er enn mánuður til flokksþings, sagði Siv í gær. Hún sagði fjóra kosti í stöðunni, að gefa kost á sér til embættis formanns eða varaformanns, sækjast eftir endurkjöri í starf ritara eða draga sig út úr flokksforystunni. Flokksþing Framsóknar fer fram 18. og 19. ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×