Innlent

Enginn fékk að sjá kjarasamninginn

frá framkvæmdastjórnarfundi Fyrrverandi framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins segir ráðningarsamning framkvæmdastjóra ekki geta verið trúnaðarmál milli formanns og framkvæmdastjóra. Samkvæmt lögum sé framkvæmdastjóri ráðinn af framkvæmdastjórn, ekki formanni.
frá framkvæmdastjórnarfundi Fyrrverandi framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins segir ráðningarsamning framkvæmdastjóra ekki geta verið trúnaðarmál milli formanns og framkvæmdastjóra. Samkvæmt lögum sé framkvæmdastjóri ráðinn af framkvæmdastjórn, ekki formanni.

Ráðningarsamningur sá er Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, gerði við nýjan framkvæmdastjóra bandalagsins var ekki opinberaður stjórnarmeðlimum bandalagsins né öðrum, þrátt fyrir að lög bandalagsins kveði á um það.

Áhrifamenn innan bandalagsins ætla nú að kæra Sigurstein til félagsmálaráðuneytisins og vilja meina að með samningnum við framkvæmdastjórann sé Sigursteinn að ákveða eigin laun, en framkvæmdastjóri fær sömu laun og formaður.

Samkvæmt lögunum gerir framkvæmdastjórn bandalagsins ráðningarsamning við framkvæmdastjóra, sem staðfestir skal af aðalstjórn bandalagsins. Arnþór Helgason, fyrrverandi framkvæmdastjóri bandalagsins, segir þetta ekki hafa verið gert.

„Þessi samningur var sagður vera trúnaðarmál milli Sigursteins og framkvæmdastjórans, sem getur hreinlega ekki verið. Samkvæmt lögunum er það framkvæmdastjórnin sem ræður framkvæmdastjóra en ekki formaðurinn,“ segir Arnþór. „Aðalstjórnin er æðsta vald Öryrkjabandalagsins á milli aðalfunda og framkvæmdastjórnin vinnur í umboði aðalstjórnar. Þetta hlýtur núverandi formaður bandalagsins að vita.“

Guðmundur Johnsen, einn þeirra sem ætla að kæra Sigurstein, segir ráðningu framkvæmdastjóra hafa verið knúna fram í gegnum stjórnina án þess að nokkur umræða um málið hafi verið leyfð og án þess að samningurinn hafi verið lagður fram.

„Þetta stangast á við allt sem heitir lýðræði og eðlileg stjórnsýsla. Það kaus minna en helmingur manna með samningnum, meirihlutinn sat hjá. Við teljum að enn hafi ekki farið fram nein umræða sem réttlætir að samningurinn sé staðfestur. Menn staðfesta ekki samninga sem menn hafa ekki séð, það er grundvallaratriði í samningum.“

Guðmundur segir rangt að kæran sé til komin vegna persónulegrar óvildar í garð Sigursteins. „Á sínum tíma kaus ég Sigur­stein vegna þess að ég taldi hann ágætlega vel greindan. Ég sé ekki hvernig það lýsir persónulegri óvild.“

Ekki náðist í Sigurstein Másson vegna málsins í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×