Innlent

Velja nýtt byggðarmerki

Opin samkeppni verður haldin um nýtt byggðarmerki fyrir hið sameinaða sveitarfélag Borgarbyggðar. Þetta var samþykkt á fundi atvinnu- og markaðsnefndar í síðustu viku. Merkið á að hafa augljósa skírskotun til landafræði, sögu, menningar, dýralífs eða atvinnulífs svæðisins.

Peningaverðlaun eru í boði fyrir þrjár bestu tillögurnar og fær höfundur þeirrar álitlegustu hundrað þúsund krónur. Skilafrestur er til 8. nóvember og verða úrslit kynnt á vef borgarbyggðar hinn 19. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×