Innlent

Fann fólkið á leið til leitar

Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því.

Þá voru um þrjátíu björgunarsveitarmenn kallaðir út um klukkan tíu vegna fjögurra kvenna sem fundust klukkustund síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×