Innlent

Enn í gjörgæslu

Ökumaður bifreiðar sem lenti í árekstri á Vesturlandsvegi norðan Þingvallavegar um miðnætti á laugardagskvöld er enn í gjörgæslu. Að sögn vakthafandi læknis er líðan hans óbreytt, en honum er haldið sofandi í öndunarvél. Einn lést í slysinu sem varð eftir að hestar hlupu í veg fyrir bílinn.

Sautján ára piltur sem fluttur var á gjörgæslu eftir slys á Garðskagavegi norðan við Sandgerði á miðvikudag hefur verið útskrifaður. Í því slysi létust tveir.

Þá er búið að útskrifa mann um sextugt sem fluttur var á gjörgæslu eftir slys á Kjalarnesi á miðvikudag. Þar lést sextán ára stúlka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×