Viðskipti erlent

Góður hagnaður Wembleysmiða

wembley Afhending nýja Wembley leikvangsins hefur dregist von úr viti. Leikvangurinn átti að vera tilbúinn í ágúst í fyrra en búist er við að afhendingin dragist fram á mitt næsta ár.
wembley Afhending nýja Wembley leikvangsins hefur dregist von úr viti. Leikvangurinn átti að vera tilbúinn í ágúst í fyrra en búist er við að afhendingin dragist fram á mitt næsta ár. Mynd/Getty Images

Hagnaður ástralska verktaka­fyrirtækisins Multiplex nam 216,8 milljónum ástralskra dala, jafnvirði 11,5 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi árs. Um er að ræða tvöföldun á hagnaði á milli ára.

Hagnaðurinn er að mestu vegna sölu eigna og hækkunar á virði annarra eigna fyrirtækisins.

Multiplex hefur umsjón með byggingu nýja Wembley íþróttaleikvangsins í Lundúnum í Bretlandi, sem átti að vera tilbúinn fyrir ári. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa varað við því að það muni skila frá sér færri verkum á næstu tveimur árum og séu líkur á að afhending leikvangsins dragist fram á mitt næsta ár. Verður hún þá tæpum tveimur árum á eftir áætlun.

Kostnaður við nýja leikvanginn, sem rúmar níutíu þúsund manns í sæti, hefur farið langt fram úr áætlun og sagði John Roberts, stofnandi og stjórnarformaður Multiplex, af sér í maí á síðasta ári vegna þessa. Segir fyrirtækið tafir á afhendingu verksins vera komnar til vegna breytinga rekstraraðila á hönnun leikvangsins.

Lengi vel var búist við að fyrirtækið þyrfti að greiða breska knattspyrnusambandinu fjörutíu milljónir punda, jafnvirði 5,2 milljarða íslenskra króna, í sektir vegna tafanna en fastlega er búist við að fallið verði frá kröfunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×