Innlent

Segir kröfur Þórólfs fráleitar

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Icelandic Group, segir kröfur Þórólfs Árnasonar, forstjóra Skýrr og fyrrverandi forstjóra Icelandic Group, fráleitar en hann hefur ákveðið að höfða mál á hendur félaginu vegna vanefnda á kauprétti á hlutabréfum, eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu. Þórólfur var forstjóri Icelandic Group í rúma fjóra mánuði en hann hætti störfum hjá félaginu 13.október í fyrra.

Gunnlaugur segir kröfur Þórólfs taklausar. Kröfur Þórólfs eru fráleitar. Hann hefur fengið nóg greitt fyrir sitt vinnuframlag fyrir hönd þessa félags, sagði Gunnlaugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×