Innlent

Pósthús rís á Reyðarfirði

Nýtt pósthús mun rísa á Reyðarfirði næsta sumar ef áætlanir um byggingu þess ganga eftir. Skóflustunga að húsinu var tekin á dögunum. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, kynnti við tækifærið tillögur um byggingu nýrra pósthúsa á tíu stöðum á landinu.

Sú uppbygging er liður í þeirri ákvörðun stjórnar Íslandspósts að byggja upp starfsemi og þjónustu á landsbyggðinni. Stefnt er að því að framkvæmdum við þessi verkefni verði lokið á næstu þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×