Innlent

Gaf upp kennitölu annars

Tæplega tvítugur maður var stöðvaður af lögreglunni í Reykjavík um miðnættið á mánudagskvöld þar sem skrásetningarnúmer vantaði á framhlið bifreiðar sem hann ók.

Þegar lögreglan kannaði bifreiðina nánar kom í ljós að hún var einnig ótryggð.

Ungi maðurinn gat ekki framvísað neinum persónuskilríkjum og reyndi að blekkja lögreglu með því að gefa upp kennitölu annars manns.

Að sögn lögreglu er slíkt athæfi ekki einsdæmi en þó fjarri því að vera algengt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×