Innlent

Slapp ómeiddur úr bílveltu

Ökumaður slapp lítið meiddur eftir að bifreið hans valt á Landvegi, skammt frá afleggjaranum að Laugalandsskóla um sjö leytið í gærmorgun.

Að sögn lögreglu var mikil hálka á veginum og virðist sem ökumaður bifreiðarinnar hafi ekki áttað sig nægilega fljótt á aðstæðum.

Bifreiðin rann til á veginum og valt eina veltu. Ökumaðurinn óskaði sjálfur eftir hjálp og gat komið sér út úr bifreiðinni. Að sögn lögreglu bjargaði bílbelti ökumannsins því að ekki fór verr. Bifreiðin er mikið skemmd eða jafnvel ónýt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×