Innlent

Hótuðu manni með kúbeini

Tveir menn brutu sér leið inn í íbúðarhús í vesturbæ Kópavogs í gærmorgun og veittust að húsráðanda með kúbeini. Hann náði að verjast árásarmönnunum en þeir náðu þó að hafa með sér á brott sjónvarpstæki húsráðanda. Tilefni árásarinnar er að sögn lögreglu talið vera bílaviðskipti sem fóru illa.

Ekki var búið að handtaka mennina síðast þegar af fréttist en lögreglan telur sig vita hverjir voru þarna að verki. Hún hvetur mennina til að gefa sig fram sem fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×