Innlent

Stefnir á 3.-5. sæti í Reykjavík

Steinn Kárason
Steinn Kárason

Steinn Kárason umhverfishagfræðingur gefur kost á sér í 3.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Steinn er með M.Sc.-prófi í umhverfisstjórnun og alþjóðaviðskiptum frá Álaborgarháskóla og útskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst.

Hann situr í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi og er fulltrúi menntamálaráðuneytisins í umhverfisfræðsluráði. Hann var ritari í stjórn Félags garðyrkjumanna og um árabil í trúnaðarmannaráði og samninganefnd félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×